Terrazaas de Campoamor 22
Íbúðin er á annari hæð með góðum svölum í nýlegum íbúðarkjarna í Lomas de Cabo Roig hverfinu og er mjög vel búin. Þrír fallegir garðar eru inná milli húsana með sundlaugum, heitum potti, leiksvæði fyrir börnin, líkamsræktartækjum og hafa gestir aðgang að þeim öllum. Hverfið er mjög rólegt og gott, veitingastaðir eru í göngufæri og stutt á ströndina, í La Zenia mollið og niður á göngugötuna í Cabo Roig. Einnig eru margir golfvellir stutt frá hverfinu eins og Campoamor, Villamartin, Las Colinas og Las Ramblas. Íbúðinni fylgir tvö stæði annað í læstum bílakjallara (nr 61) og hitt innan girðingar fyrir framan blokkina (nr 4).
Komið er inn í forstofu með góðum skáp og þaðan er gengið beint inn í opið rými með fallegri stofu sem einnig er borðstofa og opið er inn í eldhúsið. Í stofunni er góður sófi, sjónvarp með erlendum sjónvarpsstöðvum, WiFi, loftkæling og fallegt borðstofuborð með stólum. Frá stofunni er gengið út á rúmgóðar svalir með borði, stólum, rafmagnsgrilli og flottu útsýni yfir garðinn og út á sjó.
Eldhúsið er bjart og vel búið og þaðan er síðan gengið inn í þvottahús/geymslu. Í eldhúsinu er uppþvottavél, örbylgjuofn, kaffivél, brauðrist, og öll helstu áhöld til matargerðar.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergið er með nýju 180 cm hjónarúmi og góðum fataskápum, innaf hjónaherberginu er rúmgott baðherbergi með sturtuklefa. Frá hjónaherbergi er einnig hægt að ganga út á svalirnar.
Gestaherbergið er með tveimur einstaklings rúmum (hægt að færa saman) og góðum fataskápum. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu, hjónaherbergið einnig með fjarstýrðri viftu í lofti.
Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og haustin. Einnig er barnaferðarúm og barnastóll.
Baðherbergin eru tvö
Tvö falleg baðherbergi eru í íbúðinni, annað er innaf hjónaherbergi. Þau eru bæði rúmgóð með salerni, vaski, sturtu, hárblásara og innréttingu.
Baðhandklæði fylgja leigu, eitt stórt og eitt lítið fyrir hvern gest.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður í garðinn og á ströndina.
Svalir og sundlaugargarðar
Gengið er út úr stofunni á fallegar svalir sem snúa í suður með útsýni yfir sundlaugar garðinn og út á sjó. Þar er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta.