Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni - Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni  
Spanish | English | Íslenska
 

Sértilboð


Hús til sölu á spáni

nú er rétti tíminn til að kaupa
allt að 70% afsláttur
www.spanarhus.is  

Hús merkt ** veita afslátt
til Félaga FBM
Félag Pípulagningameistara
Sjúkraliðafélagi Íslands
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga

afsláttur er ekki veittur af vetraverði

Verslanir

Torrevieja - Habaneras er glæsileg verslunarmiðstöð, þar eru allar þekktustu verslanirnar, svo sem H&M, Zara, Jack and Jones, Berskha, C&A svo nokkrar séu nefndar. Mikill fjöldi veitingastaða er við hliðina á Habaneras og þar eru einnig stór keilu- og leiktækjasalur og bíósalir, þannig að allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

La Zenia - Zenia Boulevard  Þar er að finna allar helstu verslanir svo sem stóra Primark, H&M, C&A, Zöru, Blanco, Massimo Dutti, Strativarius, Berskha, Guess, Benetton, Jack and Jones, Mango og Pull and Bear svo nokkar séu nefndar. Einnig eru þar fjöldin allur af veitingastöðum og stórt Casino

San Javier - Dos Mares
Þar er einnig fjöldi þekktra verslana og veitingastaða, bíósalir og leiktækjasalur þar sem sérstaklega er gaman að fara með yngstu kynslóðina. Í Dos Mares er stórmarkaðurinn Eroski, þar sem er að finna ótrúlegt vöruúrval á mjög góðu verði.

Murcia - Nuevo Condomina  er mjög rúmgóð og glæsileg verslunarmiðstöð. Þessi verslunarmiðstöð er mun stærri en hinar tvær og þarna er að sjálfsögðu að finna allar þekktustu verslanirnar ásamt Primark þar sem hægt er að fá föt á alla fjölskylduna á ótrúlega lágu verði. Þarna er einnig að finna mikinn fjölda góðra veitingastaða og kaffihúsa.  GPS staðarhnit: N 38.0422222, W -1.1447222

Murcia - Nuevo Condomina, er IKEA verslun sem er ekki síður stór með fjölbreyttara vöruúrvali en við þekkjum frá Íslandi á verulega góðu verði.

Cartagena - Espacio Mediterraneo
verslunarmiðstöðin er einkar glæsileg þar sem hægt er að finna allar þekktustu verslanirnar.

Alicante eru margar verslunarmiðstöðvar með fjölmörgum verslunum og veitingastöðum og má þar m.a. nefna El Corte Ingles, Gran Via og Plazamar 2. Skammt norðan við Alicante, um 60 mín. er NIKE Factory Store þar sem er að finna mikið úrval af NIKE-vörum á einstaklega góðu verði og er hægt að mæla með að fólk gefi sér tíma til að fara þangað. Einnig er önnur íþróttavörubúð Decathlon rétt hjá Alicante þar sem hægt er að gera mjög góð kaup á vörum frá þekktustu íþróttavöruframleiðendunum.