Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni - Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni  
Spanish | English | Íslenska
 

Sértilboð


Hús til sölu á spáni

nú er rétti tíminn til að kaupa
allt að 70% afsláttur
www.spanarhus.is  

Hús merkt ** veita afslátt
til Félaga FBM
Félag Pípulagningameistara
Sjúkraliðafélagi Íslands
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga

afsláttur er ekki veittur af vetraverði

Torrevieja **

  • Íbúð
  • 2
  • 60

  • Verð fyrir vikuna
  •  
  • 580€
  • 640€


Sækja um leigu

Fylltu út upplýsingar um þig og tímabil hér að neðan.

  • Upplýsingar
  • Tímabil
  • Skoða lausa daga

Íbúð með tveimur svefnherbergjum og sólbaðsaðstöðu á þaki í Torrevieja á Spáni.  Frábær staðsetning þar sem allt er í göngufæri.  Aðeins 10 mín. gangur er í miðbæ Torrevieja þar sem markaður er alla daga vikunnar og tívolí.  Aðeins 20 mín. gangur á ströndina og vatnsrennibrautagarður (Aquopolis) er í um 15 mín. göngufæri. Verslanir og föstudagsmarkaðurinn er í  5-10 mín. göngufæri.
WIFI innifalið - 3 Tíma tímarofi er á lofkælingu


Heimilisfang: Calle Pablo no. 102, Mercader Torregrosa, 03180 Torrevieja, Alicante. Spain, Res. Europa, Fase 2, Torrevieja

Við sækjum þig á flugvöllin ef þú óskar eftir því.
- Húsið rúmar 5-6 manns 4 fullorðna + 2 börn
- 2 svefnherbergi
- Þvottavél
- 1 baðherbergi með sturtu
- sólabaðsaðstaða á þaki og við sundlaug
- Frír aðgangur að hverfissundlaug
- 20 mín rölt niður á strönd
- 8 mín ganga að Habaneras verslunarmiðstöðinni
- Rólegt hverfi og stutt í alla þjónustu
- Hér geturðu sparað þér bílaleigubílinn

Heildarlýsing
Íbúðin er á efri hæð í raðhúsi.  Hún er 60 m2 með tveimur svefnherbergjum, hjónarúm í öðru og tvö rúm í hinu, góðir fataskápar í báðum herbergjum. Stofa með sófasetti og sjónvarpi.  Loftkæling (air conditioning).  Í baðherbergi er baðkar með sturtu. Í eldhúsi er ísskápur með frystihólfi, eldavél með bakarofni, blandari, vöflujárn og borðbúnaður fyrir sex manns. Á sólþakinu er borð með fjórum stólum og tveir sólbekkir.  Sameiginleg sundlaug er í læstum garði auk barnasundlaugar. Handklæði, tuskur og viskustykki eru til staðar.  Gestir þurfa að koma með sín eigin strandhandklæði. Stutt í alla þjónustu. Aðeins 10 mín. gangur niður í miðbæ Torrevieja þar sem markaður er alla daga vikunnar og tívolí.  Ca. 20 mín. gangur á ströndina og vatnsrennibrautagarður (Aquopolis) í um 15 mín. göngufæri. Verslanir og föstudagsmarkaður er í  5-10 mín. göngufæri. Habaneras, ein stærsta verslunarmiðstöð á Costa Blanca svæðinu, er í ca. 10 mín. göngufæri en þar eru verslanir eins og Zara, HM, C&A, Intersport  o.fl.  Frá flugvellinum í Alicante er ca. 35 mín. akstur.

ATH: Rauðir dagar í dagatali geta verið skipti dagar leitið nánari upplýsinga um lausa daga spanarfri(at)spanarfri.is.

Staðfestingargjald er 20% leiguverðs sem greiðist við bókun og er óafturkræft. Greiða þarf leigu að fullu eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf leigutímans. Þrif íbúðar við brottför eru ekki innifalin í verði þrif eru 60 eu fyrir per tímabil. Hver gestur umfram 4 er 60 eu vikan

Skoða
google kort 360° og þú gengur um nágrenið

3. glæsilegir golfvellir nálæt okkur:
La Finca - Villamartin - Las Ramblas
Nánari upplýsingar á Spain info um þessa golfvelli:

www.spanarfri.is
Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni
Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni


 


Myndir