Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni - Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni  
Spanish | English | Íslenska
 

Sértilboð


Hús til sölu á spáni

nú er rétti tíminn til að kaupa
allt að 70% afsláttur
www.spanarhus.is  

Hús merkt ** veita afslátt
til Félaga FBM
Félag Pípulagningameistara
Sjúkraliðafélagi Íslands
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga

afsláttur er ekki veittur af vetraverði

Torrevieja **

  • Raðhús
  • 2
  • 60

  • Verð fyrir vikuna
  •  680€
  • 520€
  • 590€


Sækja um leigu

Fylltu út upplýsingar um þig og tímabil hér að neðan.

  • Upplýsingar
  • Tímabil
  • Skoða lausa daga

Mikið endunýjuð íbúð í Torrevieja frábær staðsetning þar sem margt er í göngufæri.  Habaneras einn stærsti verslunarkjarni á costa blanca er í 8 min göngufæri, föstudagsmarkaðurinn 8 min, Vatnsrennibrautargarður Aquopolis 7 min, Miðbær Torrevieja 15 min, Ströndin 20 min.
WIFI ljósleiðari innifalið í verði.  Sjónvarpsbox ITVP er í íbúð og í gegnum það nærðu íslenskum sjónvarps og útvarpsstöðvum sem og fjölda af breskum stöðvum.
Skoða lausadaga sjá vinstrameginn link undir tímabil
Tímarofi er á lofkælingu eða hita
Myndir af íbúðinni neðst eftir texta
Vetrarverð 520eu vikan
Sumarverð 590eu - júlí - ágúst 
680eu - vikan

Langtímaleiga 3 mánuðir eða meira
1000 eu mánuðurinn + rafmagn - vatn


Flug til Alicante sjá Flug

Við sækjum þig á flugvöllin ef þú óskar eftir því.


- Húsið rúmar 4 fullorðna + 1 gest auka
- 2 svefnherbergi
- Þvottavél
- 1 baðherbergi með sturtu
- Sólabaðsaðstaða á verönd og við sundlaug
- Frír aðgangur að hverfissundlaug
- 25 mín rölt niður á strönd
- 8 mín ganga að Habaneras verslunarmiðstöðinni
- Rólegt hverfi og stutt í alla þjónustu
- Hér geturðu sparað þér bílaleigubílinn

 Íbúðin er neðri hæð í raðhúsi. Hún skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi og er um 60 m2. Íbúðin er með loftkælingu.

Annað herbergið er með tveimur rúmum og góðum skáp en hitt með hjónarúmi og góðum fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og er með sturtu.

Í eldhúsi er ísskápur með frystihólfi, tauþvottavél, eldavél með bakarofni, kaffivél og brauðrist. Borðbúnaður er fyrir 6 manns. Auk þess pottar og pönnur og annað tilheyrandi sem á að vera í eldhúsi og að auki er kolagrill á verönd.  

Í stofu eru 2ja og 3ja sæta sófar 3ja sæta sófin er einnig svefnsófi, borðstofuborð og 4 stólar, lítil hillusamstæða með glösum, gerfihnattasjónvarp og DVD. Í lofti yfir borðstofuborði er ljós með viftu.

það eru rúmföt fyrir öll rúm, tveir umgangar. Auk þess baðhandklæði, minni handklæði, tuskur og viskustykki. Teppi á rúmum. Þó er gert er ráð fyrir að gestir komi með sín eigin handklæði til að nota við sólböð.  

Verandir eru tvær, sólbekkir eru fyrir 4 ásamt borði og stólum. Sundlaugargarðurinn er lokaður á tímabilinu nóv - feb. ár hvert en þar er mjög góð sundlaug og aðstaða til að liggja í sólbaði og hafa það gott.

ATH: Rauðir dagar í dagatali geta verið skipti dagar leitið nánari upplýsinga um lausa daga burkni(at)spann.is.


Staðfestingargjald er 20% leiguverðs sem greiðist við bókun og er óafturkræft. 
Greiða þarf leigu að fullu eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf leigutímans.
Þrif íbúðar við brottför eru ekki innifalin í verði.
Hver gestur umfram uppgefin fjölda 50 eu vikan
Tryggingargjald er 25.000.- og er endurgreitt við heimkomu.
Tryggingargjald er fyrir: Skil á lyklum - Þrifum - Lámarkstjóni.



Langtímaleiga 700 eu mánuðurinn með rafmagni og vatni.


Skoða
google kort 360° og þú gengur um nágrenið
bæklingur - Aksturs leiðbeiningar að íbúð

Sjá staðsetningu með nágrennislýsingu


Heimilisfang: Torrevieja, Pueblo Centro Manzana II - 28 B, Larrosa

www.spanarfri.is
Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni
Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni

 


Myndir